Hallgrímur Jónsson

ID: 9357
Fæðingarár : 1895
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1918

Hallgrímur Jónsson Mynd í eigu afkomenda Kristjönu Jónsdóttur frá Mýri

Hallgrímur Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1885. Dáinn í loftbardaga yfir Frakklandi 3. september, 1918.

Ókvæntur og barnlaus.

Hallgrímur fór vestur til Kanada með systur sína, Sigríði árið 1900. Þau voru í Winnipeg árið 1903 þegar faðir þeirra, Jón Jónsson frá Mýri kom þangað með hin börnin sín sjö. Fjölskyldan bjó fyrst um sinn í Manitoba en flutti svo vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hallgrímur gekk menntaveginn, útskrifaðist frá Wesley College (University of Winnipeg) árið 1912. Skráði sig í kanadíska herinn árið 1916 og barðist í Frakklandi.