Leo Melsted

ID: 20693
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1902

Leo Melsted Mynd VÍÆ V

Anna T Melsted Mynd VÍÆ V

Leo Melsted fæddist 28. janúar, 1902 í Garðar í N. Dakota.

Maki: 27. júlí, 1928 Anna Tiechreb f. 28. október, 1901 í Morden, Manitoba. Hollenskur uppruni.

Börn: 1. Kenneth f. 19. júní, 1931.

Leo var sonur Jóhannesar Melsted og Jóhönnu Jóhannesdóttur í Garðar, N. D. Þar ólst Leo upp en átta ára gamall flutti hann með föður sínum til Wynyard í Saskatchewan. Þar varð Leo mikill athafnamaður og var virkur þátttakandi í sveitastjórnarmálum. Hann sat í bæjarstjórn og var bæjarstjóri um tíma.