Björn Sigurðsson fæddist í S. Múlasýslu árið 1869. Dáinn í Oak Point í Lundarbyggð árið 1944
Maki: 1891 Jóhanna Anoníusdóttir f. 1859. Fór ekkja vestur. Dáin í Oak Point árið 1945.
Börn: 1. Sigþóra 2. Björn f. 1895 3. Jónas f. 1897 3. Ellis Guðfinnur f. 1898 4. Jóhannes f. 1899 5. Anna Björg f. 1901 6. Antoníus f. 1905. Jóhanna átti með fyrri eiginmanni sínum, Þorsteini Eiríkssyni, þessi börn: 1. Jón f. 1878 2. Ingveldur f. 1880 3. Margrét f. 1881 4. Sigurður f. 1885, dó fljótlega eftir fæðingu. Með Jóhönnu vestur fór fóstursonur hennar, Eiríkur Þorsteinsson.
Björn og Jóhanna bjuggu í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi fram yfir aldamót en neyddust þá skömmu síðar til að yfirgefa lönd sín vegna flóða í Winnipegvatni. Þau settust að í Grunnavatnsbyggð og bjuggu þar til ársins 1926. Þá fluttu þau í þorpið Oak Point.
