Hans Níelsson

ID: 9415
Fæðingarár : 1822
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1912

Hans Níelsson var fæddur 1822 á Siglufirði í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn 1912 í Árdalsbyggð í Manitoba..

Maki: 1) Hólmfríður Guðmundsdóttir f. 1828 í S.Þingeyjarsýslu, d. 1870. 2) 13. mars, 1878 Guðný Gísladóttir f. 1851

Börn: Með Hómfríði: 1. Jón Folmer f. 1848 2. Edvald Hans f. 1850, fór ekki vestur 3. Hans Hermann f. 1851 4. Vilhelm Valdimar f. 1854, fór ekki vestur 5. Ágúst f. 1856, fór ekki vestur 6. Sylvia Lovísa f. 1858 7. Anna Guðrún f. 1860 fór ekki vestur 8. Níelsína Jakobína f. 1864 fór ekki vestur 9. Friðrik Hólm f. 1866, d. í Manitoba 1925 10. Með Guðnýju 1. Wilhelm Hans f. 1880 2. Jónína Guðný f. í Mountain, N.Dakota 1882.

Hans fór vestur árið 1873 og dvaldi meðal ættingja í Wisconsin fyrstu árin. Hann flutti þaðan til Nýja Íslands 1876 og settist að í Fljótsbyggð. Þaðan lá leiðin til N. Dakota 1880.  Flutti í Framnesbyggðina með Friðriki syni sínum frá N. Dakota árið 1902.