Valdimar Jónsson

ID: 9424
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1968

Valdimar Jónsson Mynd RbQ

Margrét Bergsveinsdóttir Mynd RbQ

Valdimar Jónsson fæddist 14. maí, 1874 á Hofsstöðum í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Vatnabyggð 3. maí, 1968. Waldimar Johnson vestra.

Maki: Margrét Bergsveinsdóttir f. 9. ágúst, 1876 í Dalasýslu, d. 17. júlí, 1950 í Saskatchewan.

Börn: 1. Bergsveinn f. 13. október, 1900 2. Sesselja Octavía f. 25. október, 1902 3. Kristján Eðvarð f. 19. febrúar, 1906 4. Finnbogi f. 17. júlí, 1908 5. Margrét Sigríður f. 10. mars, 1910.

Valdimar fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Samferða honum var systir hans Þóra, ekkja 23 ára gömul með son sinn Jón Aðalstein Ásmundsson. Valdimar vann fyrstu árin í Nýja Íslandi, Argylebyggð og suður í N. Dakota. Var ökumaður í Winnipeg 1899-1906. Margrét fór vestur þangað með foreldrum sínum  árið 1888. Valdimar og Margrét voru í Winnipeg til ársins 1906, fluttu þá vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan og settust að suður af Wynyard.