Jónas Þorláksson

ID: 9543
Fæðingarár : 1890
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Jónas Þorláksson Mynd VÍÆ II

Jónas Þorláksson fæddist 3. febrúar, 1890 í S. Þingeyjarsýslu.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann flutti vestur til Manitoba árið 1893 með foreldrum sínum, Þorláki Jónassyni og Kristrúnu Pétursdóttur. Jónas gekk menntaveginn, lauk B.A. prófi frá Manitobaháskóla árið 1912 og seinna kennaraprófi. Gekk í kanadíska herinn og gengdi herþjónustu 1916-17 en varð að hætta vegna sjóndepru. Á næstu árum kenndi hann víða í Manitoba en á síðari árum vann hann hjá Menntamálaráðuneyti fylkisins og bjó í Winnipeg. Flutti til Gimli árið 1958 og bjó á Betel.