ID: 9604
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925
Baldvin Sigurðsson fæddist 1853 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Bresku Kólumbíu 5. nóvember, 1925.
Maki: Nanna Halldórsdóttir f. 1869 í Eyjafjarðarsýslu, d. 28. janúar, 1916. Þau skildu.
Börn: 1. Herbert 2. Jóhanna Margrét 3. Thelma
Baldvin fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1885. Fór þaðan fljótlega og settist að í Argylebyggð. Þar bjó hann í nokkur ár en flutti svo til Glenboro. Vann þar mest við smíðar. Hann flutti þaðan á fyrsta áratug 20. aldar og fór vestur á Kyrrahafsströnd. Settist að á Huntereyju í lítilli, íslenskri byggð og þar dó hann. Nanna fór vestur með foreldrum sínum, Halldóri Árnasyni og Jóhönnu Jónsdóttur árið 1885.
