ID: 9684
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1962

Áskell Sigtryggsson Mynd Laxdælir
Áskell Sigtryggsson fæddist í Kasthvammi í S. Þingeyjarsýslu 19. apríl, 1884. Dáinn í San Francisco 14. júní, 1962.
Ókvæntur og barnlaus.
Hann flutti vestur árið 1907 með foreldrum sínum, Sigtryggi Kristjánssyni og Önnu Benediktsdóttur. Þau komu fyrst til Winnipeg í Manitoba, fóru þaðan sama ár vestur til Blaine í Washington. Fjölskyldan flutti til Seattle en Áskell hélt áfram til San Francisco og er þar í góðu starfi árið 1926. Hugleiddi heimferð til Íslands með bróður sínum, Benedikt einhver ár en ekkert varð úr.
