Þuríður Sveinsdóttir

ID: 9708
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1914

Þuríður Sveinsdóttir Mynd AOT 1914

Þuríður Sveinsdóttir fæddist 15. október, 1852 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Saskatchewan 17. mars, 1914 og jörðuð í Mountain, N. Dakota 25. mars.

Maki: 1) 1877 Jón Þórarinsson, f. 21. janúar, 1849, d. 25. apríl, 1891 2) 1. júlí, 1899 Indriði Sigurðsson, d. 23. október, 1912 í Saskatchewan.  Hann var jarðaður 31. október í Mountain í N. Dakota.

Börn: með Jóni: 1. Þórvör f. 1878 2. Guðrún f. 19. maí, 1880 3. Þórarinn f. 1882 4. Sveinn f. 1884 5. Metúsalem f. 1889

Þuríður flutti vestur ekkja með fimm börn árið 1891. Hún fór til systur sinnar Þórvarar sem bjó með manni sínum, Jóni Halldórssyni í Long Pine í Nebraska. Þar bjó hún í fimm ár en flutti árið 1896 til Mountain í N. Dakota. Kristján, bróðir Jóns Halldórssonar flutti fólkið á hestvögnum og tók ferðin sex vikur. Þuríður bjó þar um hríð hjá Sigurjóni bróður sínum en giftist seinna Indriða Sigurðssyni og bjuggu þau á landi sínu nærri þorpinu Munich vestur af Mountain. Árið 1903 keyptu þau hús í þorpinu Edinburgh og bjuggu þar til ársins 1910 en þá fór Indriði ásamt stjúpsonum norður til Saskatchewan þar sem þeir námu land. Þangað flutti Þuríður í maí, 1911.

Íslensk arfleifð :