ID: 9728
Fæðingarár : 1880
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1914

Jón Guðnason Mynd Almanak 1917
Jón Guðnason fæddist í S. Þingeyjarsýslu 22. apríl, 1880. Dáinn í Saskatchewan 24. október, 1914
Maki: 15. nóvember, 1910 Guðrún Sigurgeirsdóttir f. 1889 í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Emilía Sigríður 2. Jón Kjartan Sigurgeir 3. Jónína Guðrún.
Jón og Guðrún voru samferða vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893, hann 11 ára og hún 4. Jón ólst upp í Argylebyggð en árið 1906 flytur hann á land sitt í Vatnabyggð í Sasktachewan. Það var í Kandahar/Dafoebyggð.

Húsið byggði Jón úr múrsteinum árið 1912. Það eyðilagðist í eldi árið 1955. Á myndinni heldur Guðrún á Jónínu, við hlið hennar stendur Emilía og þá systir Guðrúnar með Kjartan í fanginu. Jón þar næst og þá tveir, ónafngreindir fjölskylduvinir. Mynd RbQ.
