Stefán Þorsteinsson

ID: 10006
Fæðingarár : 1874
Dánarár : 1921

Stefán Guðmundur Þorsteinsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1874. Dáinn í Manitoba 1. mars, 1921.

Maki: 23. nóvember, 1914 Sigríður Vilfríður Þorsteinsdóttir f. í Nýja Íslandi 16. júní, 1891.

Börn; 1. Lilja f. 23. júlí, 1915 2.  Vilbert f. 23. júlí, 1915, tvíburi 3. Þorsteinn f. 29. mars, 1917 4. Guðrún f. 14. júlí, 1920.

Stefán var sonur Þorsteins Jónssonar og Guðrúnar Bjarnadóttur, sem vestur fluttu árið 1879 og settust að í Nýja Íslandi. Fluttu þaðan árið 1881 í Argylebyggð í Manitoba.  Stefán ólst þar upp og gerðist bóndi í Cypress River (Brúarbyggð) í Manitoba. Sigríður var dóttir Þorsteins Eyjólfssonar og Lilju Hallsdóttur sem bjuggu í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi.