ID: 10105
Fæðingarár : 1889
Dánarár : 1949
Aðalsteinn Jakobsson fæddist 21. apríl, 1889 á Tjörnesi í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 30. október, 1949 í Manitoba.
Maki: 1912 Margrét Jósefsdóttir f. 26. maí, 1898 í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Thelma Guðrún 2. Josephine Fjóla 3. Ólafía Pearl 4. Josef Soffanias 5. Leonard Aðalsteinn 6. Luella Margrét 7. Bertha 8. Helgi Alexander 9. Freeman Leslie 10. Fríða Joanne 11. Audrey Johnson.
Aðalsteinn var tekinn í fóstur á barnsaldi af móðurbróður sínum, Ólafi Egilssyni og Guðrúnu Gísladóttur og flutti með þeim vestur til Manitoba árið 1893. Þau settust fyrst að í Argylebyggð og bjuggu þar í tvö ár. Þaðan fluttu þau á Big Point og námu land við Lonely Lakae þar sem þau bjuggu til dauðadags.
