Sigurbjörn Benediktsson fæddist 16.júlí, 1875 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn 20. desember,1960 í Lundarbyggð. Sigurbjorn Benedictson vestra.
Maki: 20. desember, 1896 Kristveig Jónsdóttir f. 30. maí, 1876, d. 8. júlí, 1941.
Börn: 1. Hólmfred f. 1894, d. 1972 2. Hjalti f. 1897, d. 1928 3. Kristín Sigríður f. 7. maí, 1899, d. 31. janúar, 1929 4. Jóhanna f. 1900 5. Hólmfríður Sigrún f. 10. mars, 1902 6. Valgerður f. 1904 7. Haraldur f. 1906 8. Friðjón Benedikt f. 1909 9. Ósk Aðalheiður f. 1912, d. 1949 10. Lilja Sigurrós f. 1915 11. Laura f. 1918.
Sigurbjörn flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1879 með foreldrum sínum, Benedikt Kristjánssyni og Hólmfríði Kristjánsdóttur. Þau settust að í Nýja Íslandi þar sem Sigurbjörn ólst upp. Kristveig fór vestur árið 1879 með sínum foreldrum, Jóni Frímanni Kristjánssyni og Kristínu Jónsdóttur. Sigurbjörn og Kristveig hófu búskap í landi föður Kristveigar, Finnstöðum. Árið 1910 fluttu þau í Grunnavatnsbyggð og námu land nærri Otto.
