Andrés Jóhannesson

ID: 10252
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla

Andrés Jóhannesson fæddist í Þingeyjarsýslu árið 1843.

Maki: Valgerður Björnsdóttir f. árið 1835 í Þingeyjarsýslu.

Börn: 1. Karólína Rannveig f. 1869 2. Jóhannes f. 1873 3. Páll f. 1877.

Björn Sigvaldason, sonur Valgerðar af fyrra hjónabandi flutti til Kanada árið 1874. Var fyrst í Kinmount, síðan Marklandi í Nova Scotia og loks í Argylebyggð í Manitoba eftir 1880. Hann sendi móður sinni og stjúpa peninga til að komast vestur til hans. Þau fluttu þangað árið 1888 og bjuggu hjá Birni og fjölskyldu hans. Seinna, þegar Páll, sonur þeirra, hafði komið undir sig fótunum í byggðinni, fluttu þau til hans.