ID: 10314
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Þorbjörg Magnúsdóttir fæddist árið 1864 í N. Þingeyjarsýslu.
Maki: 1) Þorgrímur Guðmundsson f. 6. mars, 1862 í N. Þingeyjarsýslu, d. í Akrabyggð í N. Dakota árið 1889. 2) Óli Pétursson f. 1874.
Börn: Með Þorgrími 1. Guðmundur f. 25. ágúst, 1887. Með Óla 1. Guðbjörg f. í S. Múlasýslu 1898.
Þorgrímur og Þorbjörg fluttu vestur árið 1888 og fóru til vina í Roseau sýslu í Minnesota. Þaðan lá svo leiðin vestur í Akrabyggð í N. Dakota. Þorbjörg sneri aftur til Íslands eftir lát Þorgríms, giftist svo Óla og bjuggu þau á Gíslastöðum. Fóru þaðan vestur um haf árið 1900 og settust að í Pembina í N. Dakota. Þar er Þorbjörg skráð í manntali árið 1925 og bjó þá Guðmundur sonur hennar hjá henni.
