Magnea Geirsdóttir

ID: 10438
Fæðingarár : 1878
Dánarár : 1955

Guðný Magnea Geirsdóttir og Þorgrímur Magnússon Mynd ACU

Guðný Magnea Geirsdóttir fæddist á Raufarhöfn í N. Þingeyjarsýslu 9. september, 1878. Dáin í Vancouver 9. desember, 1955.

Maki:  10. nóvember, 1910 Þorgrímur Magnússon f. 29. ágúst, 1886, d. 27. apríl, 1931. Var Thorgrimur Sigurdson vestra.

Börn: 1. Guðrún Jóhanna f. 3. september, 1911 2. Geirfinnur Sigurður f.1912 3. Jón (John) Þorgrímur f. 1913 4. Magnús Eggert f. 1914 5. Þórir Gunnar f. 1915 6. Ingólfur (Ingi) Tryggvi f. 1916 7. Valgerður Olga f. 1917 8. Halldóra (Dora) Aðalheiður f. 1919 9. Ragnheiður (Heidi) Magnea f. 1921.

Magnea var dóttir Geirs Gunnarssonar og Valgerðar Jónsdóttur sem vestur fluttu árið 1893. Þorgrímur flutti  vestur 14 ára gamall með foreldrum sínum, Magnúsi Sigurðssyni og Guðrúnu Jónsdóttur.  Þau settust að í Framnesbyggð og hófu þar búskap á eigin landi. Heilsa Guðrúnar fór versnandi, þau neyddust til að hætta búskap árið 1910 og keypti þá Þorgrímur af þeim jörðina, búpening og öll hús. Þar hét Storð og bjó Þorgrímur þar alla tíð.