Kristján Ólafsson

ID: 10932
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Hnappadalssýsla
Dánarár : 1943

Kristján Ólafsson

Kristján Ólafsson fæddist 30. september, 1856 í Hnappadalssýslu. Dáinn 26. apríl, 1943 í Winnipeg.

Maki: 1) Ólöf Hannesdóttir fæddist í Hnappadalssýslu árið 1857, d. 31. maí, 1900. 2) 12. nóvember, 1919 Gerða Halldórsdóttir, ættuð úr Önundarfirði.

Börn: Með Ólöfu 1. Kristjana 2. Kristín 3. Kristján 4. Salóme. Upplýsingar vantar um önnur fimm börn þeirra.  Með Gerðu 1. Harold 2. Theodósía.

Kristján flutti vestur til Kanada árið 1882 og fór fyrst til Pembina í N. Dakota. Vann þar í lyfjaverslun um skeið en flutti svo þaðan til Winnipeg. Þar vann hann í 12 ár í járnvöruverslun en hóf síðan samstarf við New York Life Insurance C0., líftryggingafyrirtæki, og seldi líftryggingar til dauðadags. Hann naut mikillar virðingar í Winnipeg og reyndist ætíð löndum sínum nær og fjær hin mesta hjálparhella.