ID: 10996
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1945
Jón Þorsteinsson fæddist 4. desember, 1859 í Hrútafirði í Húnavatnssýslu. Dáinn í Duluth 20. júlí, 1945.
Maki: Ingveldur Ingimundardóttir f. 6. ágúst, 1859, d. 30. maí, 1957 í St. Louis sýslu í Minnesota. Inga Bachman vestra.
Börn: 1. Marta (Martha) f. 22. október, 1895 2. Óskar (Oscar) Valtýr f. 24. mars, 1897.
Jón flutti vestur til Winnipeg árið 1886 en Ingveldur var samferða systur sinni Þóreyju og hennar fjölskyldu árið 1888. Þau fóru til New York og þaðan til Duluth í Minnesota. Þangað fór Jón og er skráður þar árið 1898. Hann vann hjá Kristjáni Jónssyni úr Sveinatungu, forstjóra Forest Hill kirkjugarðsins. Árið 1910 er hann síðan kúabóndi vestur af borginni en mun hafa búið í borginni.
