
Jón M Hannesson Mynd Dalamenn III
Jón Mikael Hannesson fæddist árið 1861 í Hnappadalssýslu , d. í Winnipeg 10. febrúar, 1942.
Maki: 1) ónefnd kona, dó eftir fárra ára hjónaband 2) 24. júní, 1893 í Winnipeg Solveig Eysteinsdóttir f. 25. febrúar, 1868 í Dalasýslu, d. í Selkirk 21. desember, 1928.
Börn: Með fyrri konu 1. Jórunn 2. Ólafur Guðmundur. Með Solveigu 1. Guðlína 2. Eygerður 3. Kristín Ólöf 4. Hannes 5. Eysteinn Haraldur 6. Þórey Ingiríður 7. Kristján Mikael.
Jón Mikael flutti vestur til Winnipeg árið 1886 og vann við trésmíði. Solveig flutti vestur til New York árið 1887 með systur sinni Þorgerði. Þær bjuggu í Sayreville sýslu í New Jersey í eitt ár, fluttu svo vestur til Winnipeg. Jón og Solveig bjuggu í Winnipeg fram yfir aldamót en fluttu þaðan til Selkirk árið 1903 og bjuggu þar alla tíð.
