Þórður Þórðarson

ID: 11100
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1939

Þórður Þórðarson læknir Mynd Well Connected

Þórður Þórðarson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1865. Dáinn í Minneota 2. ágúst, 1939.

Maki: 6. febrúar, 1901 Sigurbjörg Sigbjörnsdóttir f. 8. mars, 1877 í N. Múlasýslu, d. 10. júlí, 1905.

Börn: 1. Vilhelm f. 13. desember, 1901 2. María Aðalbjörg f. 6. ágúst, 1903 3. Sigurbjörg f. 28. júní, 1905.

Þórður flutti vestur árið 1887 eftir að hafa lokið prófi við Latínuskólann í Reykjavík. Hann las fræðin við Cornell University og árin 1893-97 las hann læknisfræðin í Chicago. Flutti til Minneota og stundaði lækningar til dauðadags. Ritstýrði Vínlandi í Minneota meðfram læknisverkum. Sigurbjörg fór vestur um haf með foreldrum sínum, Sigbirni Ásbjörnssyni og Stefaníu Magnúsdóttur. Þau settust að í Selkirk. Sigurbjörg fór suður til Minnesota í nám rétt fyrir aldamótin.