Anna Þórarinsdóttir fæddist árið 1862 í Árnessýslu.
Maki: Páll Eggerz f. í Stykkishólmi í Snæfellsnessýslu 19. desember, 1855, d. í Chicago 18. maí, 1891.
Barnlaus.
Ekki er ljóst hvenær Anna fór alfarin vestur. Í Vesturfaraskrá er ein Anna Þórarinsdóttir skráð og fór sú 25 ára gömul til New York árið 1887. Manntalsvefur Þjóðskjalasafns Íslands árið 1890 segir Pál Eggerz þá búsettan í Kirkjustræti 6 í Reykjavík ásamt eiginkonu, Önnu Þórarinsdóttur 29 ára gamalli. Þar eru svo fjögur börn skráð þeirra! Vel má vera að sú Anna sem vestur fór árið 1887 sé sú sama og skráð er til heimilis í Kirkjustræti 6 árið 1890 og að hún hafi þá komið heim til Íslands með Páli til að sækja börnin. Hennar er hins vegar ekkert getið í Landsyfirrétardómar 5. árgangri 1901 þar sem fjallað er um Pál og kröfur hans. Dalamenn lll bls. 427 segir Önnu hafa dáið eftir stutta sambúð með Páli.
