Margrét Guðjónsdóttir

ID: 11687
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1938

Margrét Hólmfríður Guðjónsdóttir fæddist 10. nóvember, 1860 í N. Múlasýslu. Dáin í Minnesota 17. febrúar, 1938.

Maki: Daníel Sigurðsson f. 30. ágúst, 1849 í N. Múlasýsla, d. í Minneapolis 22. mars, 1913. Jones vestra.

Börn: 1. Lillie May f. 14. febrúar, 1884, d. 1955 2. Evelyn Bertha f. 30. júlí, 1888 3. Tracy Daniel f. 24. ágúst, 1891 4. Eleanoe May Christine f. 18. janúar, 1894 5. Charlotte Laveria f. 20. júlí, 1899, d. 1957 6. Margaret f. 17. janúar, 1903, d. 27. desember, 1943.

Margrét flutti vestur árið 1880 með móður sinni, Kristínu Jóhannesdóttur og bróður sínum Jóni Sigurði. Þau settust að í Minnesota. Daníel flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873, dvaldi þar um slóðir einhver ár áður en hann flutti vestur til Minneota í Minnesota.  Seinna fluttu hann og Margrét til Minneapolis þar sem þau bjuggu alla tíð.