
Gunnlaugur Árnason Mynd Almanak 1938
Gunnlaugur Árnason fæddist í N. Múlasýslu 21. maí, 1876.
Maki: 1) 12. maí, 1906 Jóhanna Sigríður Þórðardóttir f. 8. júní, 1886, d. 7. apríl, 1918. 2) 5. febrúar, 1927 5. febrúar, 1927 í Wadena, Saskatchewan Guðný Jónsdóttir f. 13. apríl, 1899.
Börn: Með Jóhönnu 1. Sigrún Elísabet f. í Brownbyggð 28. júlí, 1907 2. Steinþór Árni f. í Elfros í Vatnabyggð 22. mars. 1911 3. Stefán Albert f. í Elfros 8. júlí, 1913 4. Karl Jónas F. 1. janúar, 1917. Með Guðnýju 1. Valtýr f. 5. mars, 1928 2. Kristjana Signý f. 24. mars, 1929.
Gunnlaugur flutti vestur árið 1892 með foreldrum sínum, Árna Sigurðssyni og Kristjönu S Stefánsdóttur. Þau settust að í Akrabyggð í N. Dakota en fluttu þaðan í Brownbyggð árið 1899 og þá nam Gunnlaugur land. Hann bjó þar til ársins 1910, seldi þá og flutti vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan. Jóhanna Sigríður fæddist í Manitoba, hún var dóttir Þórðar Þorsteinssonar, bónda í Argyle og Elísabetu konu hans. Guðný var dóttir Jóns Magnússonar og Kristínar Hannesardóttur í Árnessýslu. Hún flutti vestur eftir 1910.
