ID: 11779
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Guðjón Guðvaldsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1874.
Maki: kona af norskum ættum.
Börn: Upplýsingar vantar
Guðjón flutti vestur árið 1888 með foreldrum sínum, Guðvaldi Jónssyni og Kristínu Þorgrímsdóttur. Þau settust fyrst að í N. Dakota en fóru þaðan árið 1899 og settust að í Roseau í Minnesota
og þar nam Guðjón land og bjó á því einhver ár. Flutti þaðan í þorpið Badger þar sem hann fékk vinnu við verslunarstörf. Þar gekk hann í hjónaband og flutti seinna suður í Iowa þar sem hann opnaði og rak verslun um árabil.
