
Sigþrúður Guðvaldsdóttir Mynd VÍÆ I
Sigþrúður Guðvaldsdóttir fæddist árið 1887 í N. Múlasýslu. Thruda Jackson vestra seinna Goodmundsson.
Maki: 31. ágúst, 1919 Jón Hallgrímsson f. 22. nóvember, 1877 í Gimli, í Manitoba, d. í Elfros, Saskatchewan 1. desember, 1943. Goodmundsson vestra.
Börn: 1. John f. 3. desember, 192o 2. Charlotte Mary f. 28. ágúst, 1922 3. Ed f. 7. september, 1923 4. William Hallgrímur f. 2. september, 1924 4. Jóhann Magnús f. 17. janúar, 1930
Sigþrúður flutti vestur árið 1888 með foreldrum sínum, Guðvaldi Jónssyni og Kristínu Þorgrímsdóttur. Þau settust að nærri Hensel í N. Dakota, fluttu seinna til Roseau í Minnesota og þaðan til Elfros í Saskatchewan. Sigþrúður bjó sín síðustu ár í Stevensville í Ontario. Sigþrúður og Jón bjuggu lengstum í Elfros í Vatnabyggð þar sem Jón var verslunarstjóri.
