Árni Björnsson

ID: 11813
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1957

Árni Björnsson Mynd Well Connected

Árni Björnsson fæddist 8. ágúst, 1877 í N. Múlasýslu. Dáinn í Minnesota 26. ágúst, 1957. Arni B. Gislason vestra.

Maki: 1) 30. september, 1906 Cora Sigurbjörg Þóroddsdóttir f. 1885 í Minnesota, d. 5. febrúar, 1920, Eastman vestra 2) 27. september, 1922 Solveig Sigríður Grímsdóttir f. 1. desember, 1900 í Garðar, N. Dakota, d. 12. júní, 1969

Börn: Með Cora; 1. Arlon Bjorn f. 5. mars, 1908 2. Anna Grace f. 8. janúar, 1910 3. Raymond Spencer f. 8. ágúst, 1911 4. stúlka f. 4. febrúar, 1920, dó skömmu eftir fæðingu. Með Solveigu; 1. Robert Warren f. 28. april, 1925 2. Ingibjörg Sylvia Ruth f. 8. ágúst, 1928, d. 20. maí, 1931 3. Dorothy Esther f. 24. maí, 1932, d. 1932.

Árni flutti vestur til Minnesota árið 1879 með foreldrum sínum, Birni Gíslasyni og Aðalbjörgu Jónsdóttur. Þau settust að í Lyon sýslu. Árni gekk menntaveginn og varð lögfræðingur. Hann var dómari héraðsrétti í tuttugu ár. Cora var dóttir Þórodds Sigurðssonar og Önnu Björnsdóttur en foreldrar Solveigar voru Grímur Þórðarson og Ingibjörg Snæbjörnsdóttir.