Árni Sigvaldason

ID: 11847
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1901

Guðrún Aradóttir og dóttir hennar, María Jakobína Mynd Well Connected

Árni Sigvaldason: Fæddur 12. maí, 1847 í Vopnafirði í N. Múlasýslu. Dáinn 10. janúar, 1901.

Maki: Guðrún Aradóttir f. 1848 4. maí, í S. Þingeyjarsýslu. Hún var systir bræðranna Benedikts og Skafta. Dáin í Glenboro í Manitoba 8. apríl, 1923.

Börn: 1. Skafti Árni f. 1879; d. 5. september, 1952 2. Páll f. 1881; d. 27. júlí, 1883 3. Þóra (Thora) J. f. 1882; d. 5. mars, 1903 4. Júlía G. f. 13. apríl,  1884 5. María (Mary) Jakobína f. 23. desember, 1885 6. Frank f. 7. maí, 1887  7. Jón (John) f. 15. maí, 1889 8. Pálína (Pauline) Sigurbjörg  f. 28. október, 1893.

Árni flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Flutti til Nýja Íslands og var þar og í Winnipeg en 1878 flutti hann á land sitt í Lincolnbyggð í Minnesota. Guðrún var ein þeirra sem voru í litlum hópi Norðlendinga sem árið 1873 sigldu brott á Hjálmari, litlu seglskipi til Noregs. Þaðan til Vesturheims. Hún flutti til Glenboro í Manitoba eftir að Árni dó.