Jón Jónsson fæddist árið 1849 í Skeggjastaðasókn í N. Múlasýslu. Dáinn í S. Dakota 29. nóvember, 1904. John J. Hoff í Ameríku.
Maki: Sigurlaug (Sarah) Magnúsdóttir f. 16. nóvember, 1853 í Skagafjarðarsýslu.
Börn: 1. Guðný f. c1877 2. Halldór William (Willie) f. 1884 3. María Mary Baldína f. 1882 4. Hjálmar (Elmer) f. 1884 5. Elísabet (Betsy) f. 1886 6. Bergvina Violet Þorbjörg f. 4. nóvember, 1887 7. Kristinn (Christian) Bergvin f. 5. júní, 1891 8. Sæunn Christine f. 22. apríl, 1893 9. Jón Lárus f. 17. ágúst, 1896 10. Sarah Scarlata Sesselja f. 16. nóvember, 1897.
Jón flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og var í Kinmount fyrsta árið. Hann fór þaðan ári seinna og settist að í Nýja Íslandi. Hann kvæntist Sigurlaugu þar sennilega árið 1878 því fyrri maður hennar, Árni Jónsson dó stuttu eftir komuna til Nýja Íslands. Þau fluttu til Minneota í Minnesota árið 1879 og settust að á sínu landi í Lyon sýslu. Fluttu þaðan árið 1900 og voru fáein ár í Marshall en í manntali 1904 eru þau í S. Dakota í Watertown. Þar bjó ennþá Sigurlaug með dætrum sínum árið 1910.
