Magnína H Jónsdóttir

ID: 11878
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1918

Magnína Halldóra Jónsdóttir fæddist 15. febrúar, 1878 í N. Múlasýslu. Dáin 12. nóvember, 1918 í McLean sýslu í N. Dakota.

Maki: 1906 Sigurður Sigbjörnsson f. í Minnesota árið 1879.

Börn: 1. Irene f. 1908 2. Herbert Nelson f. 1910 3. Norman f. 1912 4. Lorina f. 1914 5. William f. 1917.

Magnína var dóttir Jóns Vigfússonar og Kristbjargar Kolbeinsdóttur sem vestur fluttu árið 1879 og settust að í Lyon sýslu, nærri Minneota.  Sigurður Var sonur Sigbjörns Sigurðssonar og Þuríðar Benediktsdóttur, landnema í Minnesota árið 1879. Magnína og Sigurður fluttu til N. Dakota og ráku bú í Longfellow hreppi í McLean sýslu árið 1910 og þar var Sigurður enn árið 1920, ekkill með fimm ung börn.