Solveig Jónsdóttir

ID: 11903
Fæðingarár : 1853

Solveig Jónsdóttir fæddist á Austurlandi árið 1853.

Maki: Stefán Jónsson f. 17. október, 1851 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Jón f. 1878.

Þau fóru vestur til Kanada árið 1878, samferða föður Stefáns, Jóni Sigurðssyni og systkinum Stefáns. Í manntali í Minnesota 1880 er Stefán skráður í Royal hreppi í Lincoln sýslu hjá systur sinni en þar er hvorki Solveig né sonurinn Jón tilgreind. Ekki finnast upplýsingar um örlög Solveigar og Jóns, hann var ekki ársgamall þegar ferðin vestur hófst, ef til vill var hún þeim um megn.