Sveinn S Eiríksson

ID: 12064
Fæðingarár : 1885
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1970

Sveinn Sigurvin Eiríksson og María Grímsdóttir Laxdal Mynd ACU

Sveinn Sigurvin Eiríksson fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu 13. október, 1885. Dáinn í White Rock í Bresku Kolumbíu 4. apríl, 1970.

Maki: 9. ágúst, 1916 María Grímsdóttir Laxdal f. 14. október, 1891 í Eyjafjarðarsýslu, d. í White Rock 3. júní, 1972.

Börn: 1. Sveinbjörn Stefán f. 3. febrúar, 1920 2. Marion Jóna f. 4. maí, 1923 3. Jóna Marion f. 1917, d. 1917 4. Eiríkur Grímur Allen f. 1926, d. 1930.

Sveinn flutti vestur til Winnipeg árið 1904 með foreldrum sínum, Eiríki Björnssyni og Aðalbjörgu Jónsdóttur. Þau bjuggu í borginni og þar lauk Sveinn prófi í læknisfræði vorið 1916. Hann var fyrst læknir á Gimli en vann svo víða í Manitoba til ársins 1954. Þau hjón fluttu svo vestur að Kyrrahafi á efri árum.