ID: 12104
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Sigurður Árni Vigfússon fæddist í N. Múlasýslu árið 1873. Anderson vestra.
Maki: 1) Dorothea Thompson f. 9. apríl, 1876, d. 8. janúar, 1897 2) 1898 Clara Van Tassel f. 10. september, 1874 í Wisconsin, d. 1903 eftir fæðingu. 3) Lillian Dahl f. c1875 norskrar ættar.
Börn: Með Dorothea 1. Theodore William f. 7. janúar, 1897. Með Clara 1. dóttir f. 3. maí, 1903, d. 5.maí, 1903. Með Lillian 1. Sharlotte Lillian f. 2. júlí, 1912.
Sigurður fór vestur til Minnesota árið 1880 með föður sínum, Vigfúsi Andréssyni og verðandi stjúpmóður, Sigríði Jóhannesdóttur og systkinum. Hann menntaðist vel, sneri sér að viðskiptum í Minneota var m.a. framkvæmdarstjóri „Big Store“ og sat í stjórn Minneota Milling Company og Minneota Telephone Company.
