ID: 12106
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1950

Oddur Vigfússon og fjölskylda Mynd WC
Oddur Vigfússon fæddist í N. Múlasýslu 24. febrúar, 1879. Dáinn í Minneota í Minnesota 10. mars, 1950. Oddur eða Otto Anderson í Minnesota.
Maki: Kristín Albertsdóttir f. 1885 í Lincoln sýslu í Minnesota.
Börn: Louise Sigríður f. 1905 2. Eunice Ólöf f. 2. apríl, 1907 3. Ottó Sigurður f. 23. apríl, 1910 4. Anna Genevieve f. 1912.
Oddur fór vestur til Minnesota árið 1880 með föður sínum, Vigfúsi Andréssyni, verðandi stjúpmóður, Sigríði Jóhannsdóttur og systkinum. Hann gekk í skóla, menntaðist vel og varð sölumaður hjá O. G. Anderson Cash Store. Hann vann við fasteignasölu og keypti land í McLean sýslu í N. Dakota sem hann skipti í jarðir og bauð löndum sínum í Minnesota og sveitunum þar um kring til sölu
