
Stefán Ólafsson Mynd WtW
Stefán Ólafsson fæddist í N. Múlasýslu 8. ágúst, 1860. Dáinn 19. september, 1948 í Lundarbyggð.
Maki: 19. nóvember, 1889 í Winnipeg Petrína Guðfinna Vigfúsdóttir f. 12. maí, 1869 í N. Múlasýslu, d. 17. júní, 1931.
Börn: 1. Þóra f. 4. apríl, 1890 2. Ólöf f. 19. júní, 1895 3. Björg f. 2. ágúst, 1898 4. Einar f. 24. desember, 1900 5. Sveinbjörn f. 7. mars, 1903 6. Árni f. 23. febrúar, 1906. 7. Margrét f. 22. júlí, 1910 .
Stefán fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1879. Petrína fór þangað árið 1888, samferða góðvini Stefáns, Gísla Grímssyni, sem bjó hjá þeim alla tíð. Stefán og Petrína gengu í hjónaband ári síðar og bjuggu í Winnipeg fram yfir aldamót. Fluttu þá í Lundarbyggð og bjuggu þar á sínu landi.

Þóra, Björg og Ólöf Mynd WtW

Einar, Árni, Sveinbjörn Mynd WtW
