Sigvaldi Jónsson

ID: 12130
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigvaldi Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 14. október, 1848. Dáinn í Saskatchewan fyrir 1920.

Maki: Björg Kristjánsdóttir f. 16. nóvember, 1860 í S. Þingeyjarsýslu. Sigvaldi var þríkvæntur, fyrsta kona hans hét Sigríður Björnsdóttir d. 1869, önnur var Matthildur Eymundsdóttir d. 1885.

Börn: Með Sigríði átti hann dóttur sem dó í æsku. Með Matthildi átti hann fimm börn, fjögur dóu en ein dóttir fór með honum vestur: Sigríður Stefanía f. 31. ágúst, 1875. Hann eignaðist dreng, Stefán Ólaf f. 31. janúar, 1881 með Önnu Sigurðardóttur og fór hann einnig vestur með föður sínum. Björg átti dóttur með Jósef Jónssyni. Hét sú Elín Ragnheiður f. á Burstafelli í Vopnafirði 8. október, 1886, d. í Bresku Kólumíu árið 1969.

Sigvaldi og Björg fluttu vestur árið 1889 og komu fyrst til Winnipeg í Manitoba. Þaðan fóru þau vestur í Saskatchewan og námu land austur af Churchbridge árið 1890. Þurrkaskeið á sléttunni hrakti þau, líkt og svo marga aðra, af landi sínu og fóru þau til Winnipeg þar sem þau voru með mjólkurbú. Bæði Sigvaldi og Björg áttu ættingja í Nýja Íslandi og árið 1901 námu þau land í Fljótsbyggð og nefndu Burstafell. Árið 1902 eru þau þar skráð með Elínu eina, ekkert er vitað um örlög Sigríðar og Stefáns. Ekki vegnaði þeim vel í Nýja Íslandi og á árunum 1903-1904 komu þau sér fyrir á landi norður af Elfros þar sem Sigvaldi bar beinin en hann varð fyrir eldingu. Björg vann í byggðinni einhver ár en flutti til Kaliforníu um 1930 an Snorri, bróðir hennar, bjó þá í San Diego. Hún sneri aftur til Saskatchewan að tíu árum liðnum þar sem hún lést hjá Elínu, dóttur sinni.