Jórunn Jónsdóttir

ID: 12187
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1926

Jórunn Jónsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1881. Dáin í Vatnabyggð í desember, 1926.

Maki: 22. desember, 1901 Þorviður Magnússon f. í S.Þingeyjarsýslu 7. maí, 1878, d. árið 1959 á Höfn, dvalarheimili aldraðra í Vancouver. Viddi Halldorson vestra

Börn: 1. Haraldur d. fárra ára 2. Elswood 3. Alfa (Alpha).

Þorviður fór vestur með foreldrum sínum árið 1881 og ólst upp í Hallsonbyggð í N. Dakota. Jórunn fór vestur árið 1887 með föður sínum og stjúpmóður, þeim Jóni Valdimar Jónssyni og Elísabetu Hallgrímsdóttur. Þorviður og Jórunn fluttu í Furudalsbyggð (Pine Valley) í Manitoba árið 1903 og voru þar á annað ár. Þá fluttu þau til Winnipeg en 1908 nam Þorviður land í Vatnabyggð í Saskatchewan og fluttu þau þangað árið 1909. Þau keyptu seinna lönd Elísabetar, stjúpu Jórunnar.