Sigfinnur Pétursson var fæddur í N. Múlasýslu 10.júlí árið 1838. Dáinn 11. desember, 1915.
Maki: 1: Guðrún Óladóttir 2. Sigurbjörg (Sarah) Sigurðardóttir f. 7. maí, 1843, d. 1917.
Börn: Með Guðrúnu 1: Óli f. 27. apríl, 1863. Með Sigurbjörgu 1: Guðrún f. 1877 2. Frank Vigfús f. 1880 3. Jósef f. 1883 4. Sigurður f. 27. desember, 1886
Sigfinnur og Sigurbjörg fluttu vestur í Lincolnbyggð í Minnesota árið 1878. Með þeim voru fósturbörnin Elín Sigurbjörnsdóttir, Ingibjörg og Guðbjörg Jósefsdættur, móðir þeirra var Kristín Pétursdóttir, systir Sigfinns. Ennfremur voru synir Sigurbjargar með í för, þeir Halli f. 1869 og Jörgen f. 1871. Þeir voru Björnssynir. Þá ættleiddu þau stúlku, Bertha hét sú og var fædd 1892 og dreng, James McCready (1900) bæði áttu börnin íslenska móður.
