Sigurbjörg Sigurðardóttir fæddist í N. Múlasýslu 7. maí, 1843. Dáin í Minnesota árið 1917. Sarah í Minnesota.
Maki: 1) Björn Hallason f. 1833 í N. Múlasýslu 2) Sigfinnur Pétursson fæddist í N. Múlasýslu 10. júlí, 1838, d. 11. desember, 1915 í Lincoln sýslu.
Börn: Með Birni: 1. Halli f. 1869 2. Jörgen f. 1871. Með Sigfinni: 1: Guðrún Karólína f. 1877, d. 21. júní, 1894 2. Frank Vigfús f. 1880 3. Jósef f. 1883 4. Sigurður f. 27. desember, 1886.
Sigfinnur og Sigurbjörg fluttu vestur í Lincolnbyggð í Minnesota árið 1878. Með þeim voru fósturbörnin Elín Sigurbjörnsdóttir og systurnar Ingibjörg og Guðbjörg Jósefsdætur, móðir þeirra var Kristín Pétursdóttir, systir Sigfinns. Ennfremur voru synir Sigurbjargar með í för, þeir Halli f. 1869 og Jörgen f. 1871. Þá ættleiddu þau stúlku, Bertha hét sú og var fædd 1892 og dreng, James McCready (1900) bæði áttu börnin íslenska móður.
