ID: 12257
Fæðingarár : 1891
Dánarár : 1959
Einar Oddur Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 24. ágúst, 1891. Dáinn í Minneota 10. ágúst, 1959.
Ókvæntur og barnlaus.
Einar flutti til Vesturheims árið 1903, með foreldrum sínum, Jóni Hallgrímssyni og Sigríði Guðvaldsdóttur. Þau bjuggu fyrst í Roseau í Minnesota en fluttu 1918 til Minneota og bjuggu þar. Einar lærði húsasmíði, var eitthvað í Winnipeg, Elfros í Vatnabyggð og seattle í Washington. Bjó frá 1926 í Minneota til dauðadags. Var þar í bæjarstjórn í 11 ár og bæjarstjóri 1945-1950.
