
Jón Sigvaldason, Sigrún Þorgrímsdóttir ásamt Kapitólu og Valdínu Mynd Brot
Jón Sigvaldason fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1866. Dáinn í Riverton í Manitoba árið 1948.
Maki: 1898 Sigrún (Rúna) Jóhanna Þorgrímsdóttir f. 1878 í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi, d. í Riverton árið 1966.
Börn: 1. Kapitóla f. í Selkirk, 1899 2. Valdína Steinunn f. 1900 3. Auróra d. ung 4. Þorbjörg Auróra f. 1907 5. Lára f. 1912, dó af slysförum innan sex ára aldurs 6. Alvin Soffonías f. 1916, d. 1958.
Jón flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1892 og vann fyrstu árin í borginni. Fékk svo vinnu í Nýja Íslandi og festi þar smám saman rætur. Þau bjuggu á Akri í Fljótsbyggð. Móðir hans, Soffía Jónsdóttir flutti til hans frá Íslandi og bjó í Nýja Íslandi einhver ár. Seinna flutti hún vestur að hafi og bjó sín síðustu ár í Blaine í Washingtonríki.

Akur við Íslendingafljót. Eldra húsið er bak við tréð. Mynd HILW
