Kristín Ingibjörg Ólafsdóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1887. Dáin í Seattle árið 1957.
Maki: 23. júní, 1915 Hannes Kristjánsson f. í N. Dakota 25. júlí, 1884, d. í Seattle árið 1953.
Börn: 1. Kristbjörg Ethel f. 14. apríl, 1916 2. Kristján Brynjólfur f. 27. apríl, 1917 3. Elvin f. 14. september, 1918 4. Svanfríður f. 27. september, 1919 5. Hannes f. 11. ágúst, 1921 6. Sigurrós f. 18. september, 1922 7. Sigurjón f. 16. október, 1926 8. Ivan f. 3. nóvember, 1933.
Kristín flutti vestur til Kanada árið 1892 með foreldrum sínum, Ólafi Jónssyni og Stefaníu Jónsdóttur. Hannes nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904 og settist þar að ári síðar. Hannes og Kristín bjuggu þar til ársins 1926 fluttu þá til Wynyard og þaðan 1929 til Winnipeg. Voru þar stutt því kreppan skall á og vinna var lítil svo þau settust að í Mountain í N. Dakota. Árið 1944 settust þau að í Seattle vestur við Kyrrahaf.
