Sófónías Sigbjörnsson

ID: 12455
Fæðingarár : 1899
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1949

Sófónías Sigbjörnsson fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu árið 1889. Dáinn í Vancouver árið 1949.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann fór vestur árið 1904 til Winnipeg með föður sínum, Sigbirni Sigurðssyni og bræðrum Hann vann við húsbyggingar í borginni til ársins 1908, flutti þá vestur í Vatnabyggð með föður sínum og nam þar land. Með þeim var Jóhanna Sigurðardóttir, systir Sigbjörns og bjó hún hjá Sófóníasi þar til hún lést árið 1920. Þá hætti Sófónías búskap flutti í þorpið Leslie og rak þar járnvöruverslun og stundaði jafnframt húsasmíðar.