
Myndin sýnir Jón fyrir miðju á vagninum sínum með fáeinum, íslenskum vinum. Frá vinstri Jens Gíslason, Mundi Sigurðsson, Helgi Sveinsson, Níels Hallson, Mundi Magnússon og Jón (John) Böðvarsson. Mynd WtW

Jón Bergþórsson og Petrína Magnúsdóttir Mynd WtW
Jón Pétur Bergþórsson fæddist í Möðrudal í N. Múlasýslu árið 1883. Dáinn 5. febrúar, 1958 í Lundar.
Maki: 26. desember, 1915 Petrína Magnúsdóttir f. í Lundar árið 1889.
Börn: 1. Guðrún (Runa) f. 1915 2. Ólafur (Oli) 3. Vilhelmína (Mina) 4. Albert 5. Magnús 6. Jón (John).
Jón var sonur Bergþórs Jónssonar og Vilhelmínu Eyjólfsdóttur og fór með þeim vestur til Kanada árið 1889. Petrína var dóttir Magnúsar Ólafssonar og Helgu Jónsdóttur sem vestur fluttu árið 1887 og settust að í Lundarbyggð. Jón ólst upp í föðurhúsum í Lundarbyggð og fór fljótlega að vinna fyrir sér. Ungur fékk hann vinnu í verslun Joe Halldorson í Lundar. Hann keypti hesta og vagn, fyllti vagninn af alls kyns nauðsynjum í versluninni og ferðaðist til afskekktra staða við Manitobavatn og seldi vörur. Á veturna notaði hann sleða. Hann var venjulega nokkra daga í leiðangrinum og gisti þá hjá bændum. Seinna vann hann hjá CNR járnbrautafyrirtækinu.
