Kristján Eiríksson

ID: 12812
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Kristján Eiríksson Mynd FLNÍ

Kristján Eiríksson fæddist í N. Múlasýslu 20. október, 1866.

Maki: María Marteinsdóttir f. 1856 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Carl Jóhann 2. Þórarinn 3. Halldór 4. Stefán Ólafur.

Kristján og María fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886. Fór árið 1887 til Stefáns bróður síns í Víðirnesbyggð en flutti þaðan og bjó skamman tíma í Selkirk. Nam land í Víðirnesbyggð árið 1893 og var þar til ársins 1908 en þá flutti hann norður í Dog Lake í Manitoba. Þaðan flutti hann svo vestur að Kyrrahafi árið 1920 og settist að á Vancouvereyju.