
Björn Pétursson Mynd SÍND
Björn Pétursson fæddist í S. Múlasýslu 2. ágúst, 1826. Dáinn í Winnipeg 25. september, 1893.
Maki: Ólafía Ólafsdóttir f. í S. Múlasýslu árið 1826, d. 6. desember, 1884.
Börn: 1. Anna f. 1851 2. Páll f. 1852 3. Þórunn f. 1853 4. Sigrún f. 1860 5. Halldóra f. 1. júlí, 1865 d. 10. október, 1943 6. Ólafur f. 1869 7. Sveinn f. 1855 var hálfbróðir hinna.
Björn fór vestur árið 1876 til Winnipeg í Manitoba og þaðan til Nýja Íslands. Nam land á Sandy Bar nærri Íslendingafljóti. Flutti þaðan árið 1879 til N. Dakota og bjó í Fjallabyggð. Flutti til Páls sonar síns, læknis í Huston í Minnesota en hvarf heim til Íslands að vori 1880. Sneri aftur til Vesturheims um sumarið 1881 og fór til Dakota. Hann átti þar ameríska konu, flutti til Winnipeg og gerðist trúboði Únítara.
