Þórunn B Eiríksdóttir

ID: 12891
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1911

Þórunn B Eiríksdóttir Mynd VÍÆ IV

Þórunn Björg Eiríksdóttir fæddist 1865 í N. Múlasýslu. Dáin 27. júní, 1911.

Maki: 7. júlí, 1885 Kristjón Finnsson f. í Snæfellsnessýslu árið 1853, d. árið 1924 í Nýja Íslandi.

Börn: 1. Ingunn Guðfinna f. 1886 2. Kristín f. 1888 3. Sigurrós f. 1891 4. Kristjón f.1894 5. Friðjón Victor f. 1895 6. Vilfred Laurence f. 1897 7. Sigríður f. 1901 8. Guðrún f. 1906. Kristjón átti með fyrri eiginkonu 1. Sigríður f. 1878 2. Sigurður f. 1880.

Þórunn flutti vestur til Nýja Íslands árið 1876 með foreldrum sínum, Eiríki Sigurðsyni og Ingunni Bjarnadóttur.  Kristjón flutti vestur sama ár og fór til Halldórs Friðrikssonar í Mikley. Þaðan flutti hann að Íslendingafljóti og vann hjá Sigtryggi Jónassyni í sjö ár.  Flutti út í Mikley árið 1885, nam land skammt frá Vogum og nefndi Tjörnes.  Flutti þaðan aftur að Íslendingafljóti þar sem hann rak sögunarmyllu og verslun um árabil. Flutti á land sitt í Víðir- og Sandhæðabyggð árið 1911. Seldi það eftir níu ár og flutti til Árborgar.