Sigfús Jónsson

ID: 13020
Fæðingarár : 1843
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1905

Guðrún Hildibrandsdóttir Mynd A Century Unfolds

Sigfús Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 12. mars, 1843. Dáinn 16. september, 1905.

Maki: Guðrún Hildibrandsdóttir f. 1848 í N. Múlasýslu, d. á Betel í Gimli 28. apríl, 1921.

Börn: 1. Guðbjörg f. 1873 2. Guðrún Jóhanna f. 25. júní, 1874 3. Anna Katrín f. 12. október, 1877 í Mikley 4. Hildibrandur f. 26. febrúar, 1880, d tveggja ára 5. Hildur Jónína f. í Winnipeg 1882 6. Kristbjörg f. í Winnipeg 5. apríl, 1885, dó ung 7. Guðný Ingibjörg f. 1887 8. Sigurbjörg f. 21. janúar, 1890.

Þau fluttu vestur til Nýja Íslands árið 1876 og fóru norður í Mikley. Þaðan fluttu þau árið 1881 til Winnipeg þar sem þau voru til ársins 1886 en þá fluttu þau í Ísafoldarbyggð. Þar tókst þeim að stunda búskap til ársins 1901 en þá flæddi Winnipegvatnið yfir land þeirra svo þaðan fóru þau í Víðirbyggð.