Guðlaug Einarsdóttir

ID: 13030
Fæðingarár : 1851
Dánarár : 1907

Guðlaug Einarsdóttir Mynd Brot

Guðlaug Einarsdóttir fæddist 14. apríl, 1851 í N.Múlasýslu. Dáin í Nýja Íslandi 9. ágúst, 1907.

Maki: 24.desember, 1878, Séra Páll Þorláksson gaf þau saman í Hnausabyggð:  Jón Hildibrandsson f. í N. Múlasýslu 30.maí, 1846, d. í Nýja Íslandi 3. desember, 1924.

Börn: 1. Einar f. 1876, skírður af séra Páli Þorlákssyni, d. 1. nóvember, 1877 2. Hildibrandur f. í Winnipeg 15. janúar, 1885 3. Einar f. 1889, d. 1907 4. Sigfús f. í Hnausabyggð 20. júlí, 1891.

Jón flutti vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1876. Hann var samferða verðandi eiginkonu og foreldrum hennar, Einari Guðmundssyni og Jarþrúði Guðmundsdóttur. Öll fóru þau áfram í Hnausabyggð í Nýja Íslandi og þar hófu þau búskap, Jón og Guðlaug.  Þau fluttu árið 1880 til Winnipeg og vann Jón þar við trésmíðar o.fl næstu sjö árin. Þau sneru aftur til Nýja Íslands árið 1888 og settust að í Fljótsbyggð þar sem þau bjuggu síðan.