ID: 13168
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1927
Hallur Jónsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1865. Dáinn í Manitoba árið 1927.
Maki: 1) Guðrún Eiríksdóttir f. í N. Múlasýslu árið 1865, d. í Manitoba árið 1904. 2) 1919 Ólöf Gísladóttir
Börn: Með Guðrúnu 1. Jón f. 1890 2. Anna f. 1893 3. Jónína f. 1895 4. Sigríður f. 1896 5. Eiríkur f. 1897 6. Rannveig f. 1899. Með Ólöfu 1. Haraldur 2. Jón 3. Guðrún 4. Ingibjörg 5. Jensína 6. Ólöf 7. Hallur 8. Magnús.
Hallur og Guðrún fóru vestur til Winnipeg í Manitoba ártið 1900 og fóru þau sama ár norður í Lundarbyggð. Þar var fyrir Eiríkur, bróðir Halls sem aðstoðaði þau við landnámið. Þar stundaði Hallur mest kvikfjárrækt en var jafnframt með akuryrkju. Að honum látnum bjó Ólöf áfram á landinu með börnin.
