Anna S Sveinsdóttir

ID: 13332
Fæðingarár : 1892
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1936

Anna Sigríður Sveinsdóttir fæddist 18. ágúst, 1892 í N. Múlasýslu. Dáin 13. maí, 1936 í Lundar.

Maki: Jón Ágúst Björnsson f. 17. ágúst, 1888 í Kanada. Dáinn í Lundar 31. desember, 1964. John August Bjornson vestra.

Börn: 1. Sveinn Þorbergur f. 1916, d. 1978 2. Björn (Barney) Hallgrímur f. 1918 3. Fjóla Jóhanna f. 1921 4. Laufey Guðbjörg.

Anna Sigríður fór vestur með foreldrum sínum, Sveini Guðmundssyni og Þorbjörgu Guðmundsdóttur sem vestur fluttu árið 1894.  Jón Ágúst ólst upp hjá foreldrum sínum, Birni H. Jónssyni og Guðfinnu Sigurðardóttur sem vestur fluttu árið 1886. Fjölskyldan bjó fyrst í Saskatchewan en fluttu þaðan til Winnipeg. Jón Ágúst og Anna Sigríður kynntust í Winnipeg en fluttu þaðan til Lundar og bjuggu þar alla tíð. Jón var trésmiður og byggði fjölmörg hús í Lundar, Oak Point og í Lundarbyggðinni.